Sælar;)
19.03.2007 09:42:42 / siljaj

Réttlætinu skal vera fullnægt! hehehe.

Jæja nú verð ég víst að éta hattinn minn því að montfærslan hér að neðan er dæmd ómerk, eins og Hér og nú fyrirsögnin um Bubba. Því að ég er EKKI að fara til útlanda á 5 stjörnu hótel því að það voru víst aðeins 500 miðar í boði þetta árið og yfir 1500 manns sóttu um að fara í þessa ferð og aðeins yfirmennirnir voru dregnir út!!!! já það vottar fyrir smá gremju hjá mér.

Helgin sem leið var þvílika snilldin.. Ég og Rúna fórum að hitta Lísu vinkonu inn í Hafnarfirði þar sem systir hennar býr. Ég og Lísa stútuðum smá guðsveigum og svo var planið að fara á Players en þar sem röðin var óendanleg og ég er ekki búin að vera í Idolinu, Rokklingunum né þekktum barþjónin þá urðum við að standa úti í kuldanum eins og sótsvartur almúginn. Þegar ég var búin að biða í svona 10 mín og röðin haggaðist ekki þá brustu þolrifin hjá mér og við ákváðum að hætta við að fara þangað inn.... Taugakerfið á mér þolir bara ekki raðir!... Við fórum á Pravda kiktum upp til að fara að dansa en þar sem tónlistinn var skelfileg þa fórum við niður og inni í eitthvað fjandans VIP herbergi,, já Players fólk, hver er sótsvartur almúginn nuna??? FACE Alla vega þá var alveg drulluleiðinlegt þar og ég nærrum því dó í leðursófanum, ekki úr drykkjudauða, nei gott fólk ég kann mig í drykkjunni;) heldur dó ég nærrum því úr leiðindum... Við Rúna létum þetta gott heita en Lísa hélt ótrauð áfram og djammaði fram á rauða nótt!...

Laugadagurinn var pínu erfiður en þó ekki jafn erfiður og sunnudagurinn hjá mér.. Ég, Rúna, Geirlaug sys og litla prinsessan mín fórum út að borða á Pítunni og svo ákváðum við að skella okkur inn í Keflavík á körfuboltaleik. Geirlaug reyndar meikaði það ekki og fór bara heim að sofa.... Það var ótrúlega gaman á leiknum, stemmarinn var rosa góður og leikurinn æsispennandi... Og ekki skemmdi fyrir að útsýnið var MJÖG gott;) ehehehe Við þurfum greinilega að fara oftar á körfuboltaleiki... Eftir leikinn var bara farið heim og chillað.. kl 11. fengum við svo flugu í hausinn að skella okkur á Nasa og fara á tónleika með Hjálmum, drifum okkur í djammgallann og lögðum af stað... Ekki byrjaði ferðin vel því að Rúna mín flaug á hausinn eins og belja á svelli en sem betur fer lenti hún ekki á bumbunni.. En fékk hins vegar blóðugt hné. Ég fékk sjokk þegar ég sá hana í loftköstunum, hún var í símanum en svo flaug hún á hausinn en viti menn ekki gat hún lagt dolce&gabbana símann frá sér.. hell no heldur sagði hun bara þegar hún lá í öngum sínum á jörðinni "agnes ég datt".. smá þögn svo kom "ég hringi í þig á eftir".. Ég reyndi að toga hana upp úr jörðinni og spurði hvort að við ættum ekki að kikja upp á slysó, en eftir smá samtal þa ákváðum við að sleppa því fyrst að ekki fór verr.. Svo horfðum við bara á hvor aðra og dóum úr hlátri... Þetta var svo klaufalegt... Svo ég spyr.. hvað er að jafnvægisskyninu hjá óléttum konum?.. Það er ekki ýkja langt síðan ég var ólett og flaug á hausinn á jafnsléttu og ökklabraut mig. ohhh good times........ NEI....

Alla vega við fórum og pikkuðum upp Kristínu vinkonu og fórum svo fyrir utan Klúbbinn og heilsuðum upp á Jónstein og Jenna og svo skunduðum við á NASA... Tónleikarnir voru rosa flottir og við hittum mikið af skemmtilegu liði.. Rúna skutlaði mer og kristinu svo á Sólon að hitta Jón Stein og sjitt hvað það var gaman.. Hélt að ég væri orðin of gömul fyrir Sólon, en nei heldur betur ekki... Við jón vorum eins og verstu gelgjur þarna inni. Dönsuðum og tjúttuðum og hlógum og hlógum.... John Rock fékk nýtt nafn eftir danslistir sínar um kvöldið og er hann nú kallaður John Travolta! Svo var haldið á Pravda, Hressó og Glaumbar. Jón rifjaði upp gamla mílukjaftstakta á Pizza kónginum og ég hélt að ég myndi míga í mig úr hlátri... hehehe Svo þegar það var komið að því að koma sér heim þá voru góð ráð dýr. Risa röð og tvær óþolinmóðar manneskjur sem hata að vera í röð... Þannig að við ákváðum að hlaupa bara í næsta taxa sem kom, hentum okkur inn og læstum hurðunum og hlógum eins og hálfvitar... Fólkið sem var í röðinni á undan okkar var ekkert rosalega hrifið af okkur en fokk it við vorum að svara fyrir það að við þurfum alltaf að bíða í röð en sumir ekki... RÉTTLÆTINU SKAL VERA FULLNÆGT;) hehehe... Ég kom heim um 6 leytið og var vöknuð ca hálf 9... mjög úthvíld og sæl...uuuuuuuuu NEI.... ehheheh en alla vega þá var þetta hörku helgi og mikill stemmari!...

Úff þreytt í puttunum..... Heyrumst ..

Silja


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 19:31:01 / siljaj

Mont færsla

Ég er að fara í óvissuferð 23 mars með eimskipsliðinu;) Djöfull verður það gaman!!... Það er sko 5 stjörnu hótel, galakvöldverður og fleira í þeim dúr;) Það er ekkert vitað hvert verður farið, enda væri það þá ekki óvissa.... Ég ákvað þó í gær að nú væri ég komin í drykkjubann enda búin að vera heavy þunn og raddlaus, en svo í dag þegar ég ákvað að ég myndi skella mér í þessa ferð þa hugsaði ég fokk it,, ég drekk af mér rassgatið þarna úti;) múahahahhhahahah

 Litla ljónið mitt verður í pössun á Skagaströnd hjá bestu ömmu í heiminum og besta afanum, þannig áð ég þarf nú ekki að hafa áhyggjur af henni;) Hún verður bókað í góðu glensi;)

En váaaaaaaaa ég verð að segja ykkur hvað Incubus tónleikarnir voru geðveikir, össsss þetta var mega stuð!.. Ég og Jón Steinn sungum af okkur rassgatið;) Eftir tónleikana fórum við Rúna Lísa aðeins heim til hennar að chilla og spastla meiki í smettið á okkur og svo fórum við á pool stofuna í Skeifunni og tókum nokkra leiki með strákunum. Úrslitin verða ekki gefin upp að svo stöddu... HIns vegar lentum við í afar skrýtinni lífsreynslu við hittum eldri mann þarna sem var á borði nálægt okkur og hann vildi gera okkur að milljarðamæringum, já þið lásuð rétt MILLJARÐAMÆRINGUM, eina sem við þyrfum að gera væri að lúlla hja nokkrum félögum hans, sem að hans sögn voru mjög myndarlegir.... Hann sagði að þeir væru sko tilbúnir að borga 200 þus fyrir nóttina.. við hugsuðum okkur lengi og vel um og ákváðum að slá til og viti menn erum við 200 þusundkrónum ríkari!!!!!!!

 

brumm tisssssssssssssssssssssss djók!!!! auðvitað drulluðum við yfir manninn eins og enginn væri morgundagurinn!!! hehehe en viljið þið pæla hvernig heimurinn er orðinn... Menn bara farnir að vilja gera okkur út;)hehehehhe

Eftir þessa lífsreynslu fórum við niður í bæ, nánar tiltekið á Prikið og hittum Jón Stein, Birki og Jenna. Það var stemmari;) Jón Steinn er búinn að raka af sér hárið og það fer honum bara mjög vel, svo stelpur ef þið eruð að lesa þá er ég með einn pjötlutryllir á lausu, og hann tekur ekki nema 1000 kall á nóttina, og einn jucie frutie tyggjopakka!!!.. Maður er bara farinn að gera kvikindið út;) hehehehehe

En alla vega vona að ég se buin að monta mig nóg;) ligga ligga lái,

Heyrumst

Silja montrassgat;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 10:37:34 / siljaj

Bingó-Babes

Komið þið sæl;)

Það er komin niðurstaða úr skoðanakönnuninni, og þær eru sláandi... Fólk er víst alveg viss á því að Gummi í Byrginu ætti að verða næsta L'Oreal model. Þessar niðurstöðum koma mér ekki mikið á óvart, enda maðurinn þekktur fyrir að hárprýði og þokka. Sé hann fyrir mér í L'Oreal hársveiflunni og setja frasann þeirra " L'Oreal coz I'm worth it;) ehhehe

En yfir í allt annað. Þá átti ég góðan dag í gær og þakka ykkur fyrir öll símtölin og smsin;) Hins vegar er ég þreyttari en allt í dag því að "sumir" ég nefni engin nöfn, en köllum þær bara Geirlaugu og Rúnu Lísu, þær fóru ekki fyrr en kl 2 í nótt!.. ohhh var ekki að meika að vakna í morgun, svo loksins þegar ég drattaðist á fætur kl 7 þá vildi litla ljónið mitt ekki vakna og hvað þá að láta klæða sig í föt. Hún grét og grét og það endaði með því að ég mætti 20 mín of seint í vinnunna því að ég gat ekki róað hana.... já það er hörku stemmning á morgnanna í Hraunbæ 60:) hehehe

Svo er mál málanna,,,, Incubus tónleikarnir á morgun.. úfff hvað ég hlakka til. Þetta verður hörku stuð;)

Svo er ég komin með snilldarhugmynd að mínu mati... Ég ætla að stofna Bingó klúbbinn "BINGÓ-BABES"  og verður stofnfundur næsta fimmtudag í Hraunbæ 60 og aldrei að vita að Bingó Bjössi kíki í heimsókn;)

Ég hef hugsað mér að allir tippsi inn 1000 kall svo fer mótshaldarinn og kaupir verðlaun og svo er spilað Bingó og étið eitthvað gúmmelaði;)

Hvernig hljómar það? Allir velkomnir. Skráning fer fram í Kommentum;)

 KV.

Silja


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 08:46:38 / siljaj

Ungfrú Michelin 2007!

Komið þið sæl dúllurnar mínar;)

Ég rakst á eina snilldar frétt á vísir.is, og vá hvað ég hló.. endilega lesið þessa frétt.

Fréttablaðið, 27. feb. 2007 07:30


Óbeisluð fegurðarsamkeppni á Ísafirði

„Sumir halda að þetta sé grín, en það er það ekkert endilega. Þetta er bara ein birtingarmynd fegurðar," sagði Matthildur Helgadóttir, einn skipuleggjenda ísfirskrar fegurðarsamkeppni sem leggur áherslu á óbeislaða fegurð. Í tilkynningu frá hópnum að baki keppninni segir að það muni teljast keppendum til tekna að lífið sjáist á þeim. „Er þá átt við að aldur, aukakíló, hrukkur, slit vegna barnsfæðinga, lafandi brjóst, skalli, loðið bak, appelsínuhúð o.þ.h. teljast til kynþokka." Keppt verður um titla á borð við Michelin 2007 og húðslit 2007, í Félagsheimilinu í Hnífsdal 18. apríl næstkomandi.

Eftir að Matthildur birti tilkynninguna á bloggsíðu sinni fyrir viku stóð ekki á viðbrögðum. „Þetta fékk hraðari og meiri athygli en við áttum von á," sagði hún. „Við erum búin að fá mikið af fyrirspurnum frá fólki sem hefur áhuga, en hefur líka áhyggjur af því hvernig framkvæmdin verður. Það heldur jafnvel að það eigi að fara að narra það upp á svið til að gera grín að því," sagði Matthildur, sem kvað slíkt alls ekki vera á dagskrá. „Ætlunin er að halda keppni með mat og kynni og öllusaman. Það er ekki meiningin að fólk komi fáklætt fram," sagði hún. „Við viljum opna augu fólks fyrir því að allir eru fallegir á sinn hátt. Auðvitað er dálítið háð í þessu, enda held ég að það sé alltaf gott að taka sig ekkert of alvarlega. Smá húmor skaðar aldrei," sagði Matthildur og hló við.

 Hver vill ekki vera ungfrú Michelin eða ungfrú Húðslit 2007... Það væri nú góð saga að segja ömmubörnunum sínum eftir nokkur ár;)

En þvílika hugmyndaflugið á þessu fólki;) Svo er það bara næsta á dagskrá hjá mér að fara að skella mér í þessa keppi, ég þarf nú ekki mikinn undirbúning enda búin að vera "æfa" mig fyrir þessa keppni í nokkur ár. Ég þarf bara rétta ouf-fittið og ég held að ég mæti í níþröngum gulrótargallabuxum, þar sem blóðflæðið niður í kálfa er ekki meira en 10% það ætti að gefa lærunum á mér réttláta athygli. Svo verð ég að hafa buxurnar mega þröngar yfir magann til þess að ég líti nú alveg örugglega alveg eins út eins og möffins kaka:), það ætti að heilla þetta lið;) ... Ég hef beðið eftir svona keppni lengi og ekkert nema SIGUR kemur til greina;)!!!!

Eru einhverjir fleiri til í að skella sér vestur til að taka þátt í þessari keppni?, en ég vara ykkur við,................... KEPPNIN VERÐUR HÖRÐ!...............

 Ungfrú Michelin 2007 (fegurðardrottningarveif)

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 22:04:45 / siljaj

Heheheheh munið þið eftir þessum tíma;) ?..

Þú ert 90´s kid ef þú:

  •  Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]  X
  •  Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið... X
  •  Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu X
  •  Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"... X
  •  Þegar lögga og bófi var daglegt brauð X
  •  Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir X
  •  Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar... X
  •  Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið.. X
  •  Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir X
  •  Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos X
  •  Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk 
  •  Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl X
  •  Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana... X
  •  Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum.. X
  •  Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara X
  •  Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill... X
  •  Þú áttir tölvugæludýr X
  • ...eða Furbie
  •  Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið X
  •  Og Windows '95 var best X
  •  Michael Jordan var aðal hetjan.. X
  •  Kærleiksbirnirnir X
  •  Þú safnaðir lukkutröllum X
  •  Og áttir vasadiskó X
  •  Þú kannt Macarena dansinn utanað X
  •  Þú veist af hverju 23 er kúl tala X
  •  Áður en að Myspace varð vinsælt, X
  •  Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var.. X
  •  Áður en ipod kom til sögunnar X
  •  Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til, X
  •  Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið X
  •  Og þú leigðir spólur, ekki dvd, X
  •  Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti X
  •  Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu X
  •  Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast X

Váaaaa hvað mér finnst ég vera orðin gömul þegar ég les yfir þennan lista.. heheh ég man svo skýrt eftir því þegar gemsar voru ekki daglegt brauð, man hvað ég öfundaði Ólöfu Birnu, kærustu Snorra frænda,  mikið því að hún átti símboða þegar við vorum svona í ca sjötta bekk, úffff hvað það var cool,..

Munið þið svo eftir gormareimnunum... Mér fannst ég svo töff þegar mamma keypti svona bleikar gormareimar fyrir mig niðri í Rocky.. hhahahahha good times.

En jæja, kem með svo eitthvað djúsí blogg á næstunni, og ef einhver vill kenna mér að búa til myndasíðu þá væri það voða vel þegið... ;)

_silly_


» 17 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 00:06:03 / siljaj

Hetja dagsins


Hetja dagsins er enginn annar en hann Arnþór minn..
Sá komst heldur betur í hann krappann í dag þegar hann lenti í bílslysi rétt hja Borgarnesi..
En sem betur fer þá er höfuðið á honum í lagi og hann er ekki lamaður, þannig að hitt er bara smávægilegt miðað við
það... Eins og ég segi þá er hann Arnþór hetja dagsins, anga kallinn er hörku kvalinn og illa farinn eftir þessar veltur
en ég hef fulla trú á því að hann verði fljótur að ná sér... Hann þarf að liggja inn á spítalanum í nokkra daga og
svo verður bara að meta framhaldið. Ég er svo fegin að ekki fór verr og er ég viss um að það var einhver verndarengill
að passa hann þarna í dag....
Alla vega vona ég að ég þurfi aldrei að upplifa það aftur að fá símtal þar sem manni er sagt að einhver sem manni
þykir óendanlega vænt um, sé á leiðinni suður, slasaður en þó með meðvitund! Það var eina sem ég fékk að heyra. mér
var sagt að hann kæmi í sjúkrabíl og ég beðin um að mæta niður eftir að taka á móti honum því að talið var að hann
væri alvarlega slasaður, en svo þegar ég mæti niður eftir og kiki út um gluggan þa sé eg að þyrla er að lenda á portinu
og svo er mér síðan sagt að þetta sé Arnþór, .... ég sver það hjartað á mér stoppaði....... þetta hlaut að vera
alvarlegt.... En sem betur fer þá slapp hann rosa vel... ef svo má segja.. alla vega hausinn í lagi og ekki lamaður.
Meira getur maður ekki beðið um...

Hann er þó með beinbrot, alls staðar aumur og sést varla í augun á honum fyrir bólgum og skurðum en samt er hann með
húmorinn á réttum stað..

Til að taka sem dæmi þá læt ég fylgja með nokkrar góðar setningar sem hann lét fljóta á bráðavaktinni..

LÆknirinn; ertu með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum?
Arnþór; svarar ekki.
Læknirinn; ertu með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum ?
Arnþór; svarar enn ekki
LÆknirinn; Silja er hann með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum?
Ég ; nei ég held ekki, ekki svo ég viti alla vega..
þá heyrist í Arnþóri, eina sem ég er með ofnæmi fyrir eru steven seagle myndir!!!!!

hahahahahahahaha ég hélt ég myndi kafna úr hlátri.. út úr dópaður að koma með kaldhæðni;)

Önnur saga..
Ég, Arnþór, Smári tarfur og eitthvað staff vorum inn á bráðamóttökunni og verið var að kroppa einhverja
steina sem voru fastir í andlitinu á Arnþóri. Og þá heyrist í Arnþóri, hvað er klukkan?
Hjúkkan svarar, hún er hálf 3.. Já ok fínt, viltu gjöra svo vel að drífa þig , þvi að ég er að fara á ball í kvöld og
vill líta vel út...
 
Hehehehheheheheheh við Smári emjuðum úr hlátri..

Ein í lokin.
Það var verði að dæla í Arnþor dass af morfíni þá heyrist í honum , er einhver séns að ég fái smá af þessu
morfíni með mér heim? Það væri vel hægt að gera gott partý með þetta í farteksinu;)

heheheheh enn hló ég, enda engum nema Arnþóri myndi detta í hug að segja svona, þegar hann væri nýbúinn að skjótast
einhverja metra út úr bílnum sínum.


Jæja, þetta er komið gott,

Heyrumst..
Silja seagal;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 10:33:52 / siljaj

Svona spila ég leikinn . . . .

Jæja I'm back öflugri then ever!!! (sem þýðir 2 blogg á ári)

Ég ætla að kenna ykkur nýja frasa svona í tilefni dagsins, en fyrir þá sem ekki vita þá 47 dagar þangað til að ég verð 23 ára, og því vel við hæfi að miðla visku minni. Sooo TAKE NOTES PEOPLE!!

Frasinn hljómar svona; Svona spila ég leikinn.... þessa setningu verður maður að segja með nettum hroka og dass af sjálfsumgleði, annars virkar þetta bara ekki.

Það eru ýmis tilefni sem maður getur notað þennan frasa við...t.d. þegar maður er búin að klúðra hlutunum illa þá er klassík að segja" svona spila ég leikinn". þegar maður fellur í stærðfræði 202 í þriðja skiptið "svona spila ég leikinn". .

Þegar maður er fullur 26 helgar í röð þá er klassík að segja " mamma þú veist hvernig ég spila leikinn".

Þessi frasi er ættaður að vestan, nánar tiltekið í Video-ættarsetrinu, Skipholti 6.

En alla vega yfir í allt annað..................hér er ein auglýsing sem ég er að pæla að láta í Dv og villa-video því að vinur minn er alveg að tapa geðheilsunni sinni því að hann týndi litla vini sínum.

Tapað-fundið

Tittlingur tapaðist á Akureyri aðfaranótt 4 ágúst sl.Hann var síðast notaður í tjaldi á KA svæðinu. Hann er í minni kantinum og frekar mjór. Hans er sárt saknað. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við eiganda. -

-Jón 869-foli 

En alla vega nú vil ég fá kvitt og komment því að ég veit það það eru fullt af bloggpervertum sem eru að kíkja á síðuna mína daglega þótt að ég hafi ekki bloggað í rúmt ár!...

-S-


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 01:44:31 / siljaj

Hætt með þessa síðu.....

Ég ákvað að gerast nýjungarglöð og byrja með síðu á www.123.is/duddadottir það á víst að vera svo auðvelt að setja inn myndir þar;)

Endilega kíkið þangað;)

Take care..

Silja


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 00:01:44 / siljaj

Ég á afmæli í dag!!!

Jebbs kellingin orðin 22 ára! Þið sem eruð ekki búin að gefa mér afmælisgjöf hafið akkurúat 24 tima til þess að fixa það!... tikk takk tikk takk........ tíminn líður..

Svo er það bara djammið á næstu helgi.. Mikill stemmari kominn í mannskapinn, Jónsteinn er búinn að pissa í sig úr spenningi, Orri búinn að fara í ríkið og Hrafnhildur að fara yfir um;)

Ég mun láta litlu prinsessuna mína vera í Reykjavík hjá mömmu yfir helgina og ekki laust við það að það sé mikill kvíði í mér fyrir þvi... hef aldrei verið lengur í burtu frá henni heldur en 3 klst. ....

Við mæðgurnar förum til Rvk á morgun og ég kem svo á föstudaginn og þá geri ég ráð fyrir að Orri og Jónsteinn verði búnir að kæla öllara fyrir vinkonu sína því ég þarf jú að hita upp fyrir laugardagskvöldið svo ég drepist nú ekki áður en ballið byrjar;) hehe..

Alla vega,,, bíð spennt eftir dýru pökkunum frá ykkur. .. .  .

kv. Afmælisstelpan


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 01:07:08 / siljaj

wake up call..... sumir þurfa að fara meira út!!!

Mig langar að segja ykkur frá smá atviki sem ég heyrði af um daginn.

Þannig var að vinkona mín lenti í agalegu wake up calli um daginn... Þannig er mál með vexti að sumar stelpur sem eignast börn taka þann pólinn í hæðina að koma sér í form strax eftir barnsburð svo þær geti nú lúkkað vel á djamminu þegar barnið er orðið 3 daga gamalt.... En sumar eins og vinkona mín, nenna því bara hreint ekki, taka þessu bara með mikilli ró og eru bara heima hjá sér í krumpujogging gallanum og dunda sér allan daginn og jafnvel missa töttsið við hinar almennu óskráðu reglur samfélagsins eins og t.d. að ropa ekki á almannafæri og prumpa ekki þegar aðrir eru nálægt og svo fram eftir götunum........

Í þessu dæmi held ég að gullni meðalvegurinn sé málið!!!

alla vega vinkona mín fór í litun og plokkun um daginn og á stofununni voru þessar fínu og settlegu ungu dömur að vinna, og allt var svo hljótt og gott..... Nema hvað vinkona mín finnur allt í einu fyrir þvi að henni verður agalega illt í maganum, og þarf nauðsynlega að losna við allt þetta loft sem er uppsafnað í magnum! Nú voru góð ráð dýr, því vanalega þegar hun væri heima hjá sér hefði hún bara látið vaða annað hvort með ropi eða "ristilgusti",,,,, En hún vildi ekki sjokkera þessar ungu dömur.

Það var því um þrennt að velja fyrir vinkonu mína.

í fyrsta lagi koma þessu út úr munninum í formi rops, en það var ekki við hæfi því, snyrtifræðingurinn var jú að vinna í andlitinu á henni.

í öðru lagi að prumpa!!!!! nú er ég viss um að margir lesendur taka andköf!!! en jú stelpur prumpa;) en það hefði verið ódömulegt svo ekki gerði hún það.

nr3.. að halda þessu lofti inn í sér með öllum tiltækum ráðum, þ.e.a.s. að loka munninum, herpa rassakinnarnar og hugsa fallegar hugsanir og muna að það væru aðeins örfáar mínótur þangað til að hún kæmist út!!!

Vinkona mín ákvað að velja nr.3... enda taldi hún það besta í stöðunni...........

En þetta var agalegt wake up call fyrir hana, þvi svona staða hafði ekki komið upp hjá henni í rúmt ár!! Enda var hún búin að hanga svo mikið heima og spóka sig um í heimajogginggallanum og ekki búin að pæla mikið í reglum samfélagsins! Spurning um að fara meira út? hehehe

En hver man ekki eftir því að mæta í grunnskólann, framhaldsskólann eða vinnuna og vera með magann fullan af lofti??? ( nú þykist enginn kannst við þetta) heheh

 

by the way augabrúnirnar á mér komu rosalega vel út;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 23:43:42 / siljaj

Enn eitt klukkið;)

Eva Dögg klukkað mig og here it comes;)

4. störf sem ég hef unnið um ævina

Í slægingunni í Ólafsvík ( dauði!! vinna allar nætur, ískalt og
leiðinlegt)
Á grillskálanum ( fínasta vinna, allir félagarnir koma í heimsókn
og alltaf möguleiki a að borða franskar;)
Í Bónusvideo í árbænum( voða skemmtilegt, fyrir utan lélegu launin
, engin fríðindi og nokkra leiðinlega kúnna)
Á Fréttablaðinu ( fínasta vinna, byrjaði á Smáauglýsingum  og fór
 svo yfir í dreifingardeild, stundum þreytandi en vanalega fínt)

 

4 bíomyndir sem ég gæti horft aftur og aftur  á

Með allt á hreinu ( snilldar mynd)
Save the last dance ( gelgjumynd, just as i like them)
Romy and michele high school renunion (minnir mig alltaf a mig og
 hugrúnu)
Dumb and Dumber ( klassík;)

 

4 staðir sem ég hef búið á

Í hafnarfirði ( þegar ég var lítil)
í vallholtinu í óló heima hjá ma og pa
Í hraunbænum ( í 10 bekk og þangað til 2005)
í Stekkjarholtinu  í óló( með Arnþóri, keypti það 2004)
 

4 sjónvarpsþættir sem ég held upp á

Will og Grace (elska hommaþætti)
One tree Hill (gerast ekki mikið betri en þessir þættir)
Nágrannar (standa alltaf fyrir sínu)
Sex and the city (Snilldin ein)

 

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum

Benidorm (fór með Hrafnhildi þegar ég var 16 ára, ákvað það 10
klukkutímum fyrir brottför)
Barcelona (fór með Arnþóri og vinnufélögum hans)
Húsafell (fór með Geirlaugu, Róberti og Fribba)
Munaðarnes (fór í sumarbústaðarferð með Huggu, Róberti, Fribba og
Bertu, svaka stuð og mikið drama)

 

4 heimasíður sem ég skoða daglega

Síðan þeirra Geirlaugar og Marvins (sakna þeirra)
mbl.is (maður verður að fylgjast með)
Barnaland ( tek sko rúntinn, Sara Björg, Ester, Sigurjón,
Kristófer, Inga og fl.)
Síðan hjá Hugrúnu (alltaf að vonast til að sjá nýtt blogg, sem
aldrei kemur!! )
 

4 máltíðir sem ég held upp á

Franskar (skiptir engu máli hvaðan)
Skalla hamborgaratilboð
KFC tilboð 5 (eins og sést er ég ekkert sérstaklega gefin fyrir
 hollustu;)
Kjúklingaréttur sem ég geri;)
 

4 bækur sem ég les oft

Hvar er bangsi? (Sara Björg fýlar þessa bók vel;)
Að eignast barn (verð að fá fróðleik einhversstaðar)
Finnst leiðinlegt að lesa bækur, held ekki athygli nema í svona
eina málsgrein
 

4 staðir sem ég myndi vilja vera núna

Úti í New York hjá Geirlaugu
Í ljósum í Smart (er orðin ógeðslega hvít)
Á skurðborðinu hjá lýtalækni (fara í fitusog og collagen aðgerð)
Að chilla með Belnito Del Toro í villunni hans;)
 

4 manneskjur sem ég ætla að klukka

Geirlaug og Marvin www.123.is/gm
Hrafnhildur www.blog.central.is/hrabby84
Hugrún www.blog.central.is/bugsy_is_silly
Dagný Thelma www.blog.central.is/dagnyerla

Jæja þá er þetta komið;)

Þangað til næst

Silja Del Toro


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 00:53:05 / siljaj

IT'S MILLER TIME;)

Jæja komið þið sæl ljónin mín.. .

Nú fer að líða að þvi að kellingin verði 22 ára;) Ég á afmæli 1 mars og er að pæla í því hvort að það sé ekki stemmari fyrir þvi að mæta á grímuball inn í Grundarfirði  3 eða 4 mars(man ekki hvort) í tilefni þess og detta ærlega í það;) Enda verður að fagna svona tímamótum!!Mér finnst þetta snilldarhugmynd að fara á grímuball enda ekki oft sem maður gerir svoleiðis.. Kallinn minn og hljómsveitin hans verða að spila og ég get lofað helvíti góðu prógrammi;)

Þetta grímuball er víst árlega inn í grundó og alltaf voða stemmning svo hvað segið þið um þetta???

Stelpur eruð þið game?? Ég lofa engum keppnisárangri í drykkjunni í þetta skiptið enda búin að vera í "keppnisbanni" í helvíti langan tíma....Enda síðasta fylleríið mitt í ágúst 2004!! Það var einmitt út í grundarfirði og afrekaði ég það að vinna Gumma Kr og Tedda Emma í drykkjukeppni!!!!ahhhhhh good times;)  

Er þetta málið ????

kv. Silja Dúddadóttir!!!


» 14 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 10:56:45 / siljaj

Yfirlýsing

Yfirlýsing:

þið sem höfðuð trú á mér og að ég gæti hætt að borða eitthvað óhollt eruð vægast sagt kjánar!! Já kjánar fyrir að hafa trú á mér. Því frá því síðast hef ég borðað twix súkkulaði, saltlakkrís og drukkið 7up...

Virðingarfylllst.

Silja "sem á kjánavini" hehe


» 35 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 01:18:20 / siljaj

BRJÁLUÐ ÚT Í "NORMIÐ"!

Sú var tíðan þegar það þótti flott að vera vel í holdum.. Það var merki um virðuleika og glæsileika............... ..................en nú er þetta bara vottur um leti og stjórnleysi!!! Úuuu voða sniðugt að breyta bara reglunum þegar þeim hentar! hnussss

Hvað gerðist á þessum nokkrum árum?? Hvað varð til þess að þróunin varð sem slík??

Rétt upp hendi sem hefði óskað að þróunin hefði ekki verið svona..............?!!

 

Ég hef ákveðið að fara í megrun til að reyna að fitta inn í normið sem tíðkast nú á dögum en það virðist þrautinni þyngra................. því að viljastyrkurinn og sjálfsstjórnin hjá mér er lítil sem engin. .

Ég þarf þvi að biðja ykkur öll um að sparka duglega í feita rassgatið á mér ef að þið sjáið mig vera étandi eitthvað óhollt!!!!!

 

Svo vil ég einnig minna ykkur á að það þýðir ekkert að skamma mig fyrir að vera uppstökk eða pirruð á næstunni því að ef ég fæ ekki venjulega skammtinn minn af sykri þá hleypur það í geðið á mér!.. Svo munið það er ekki ég sem stjóra þessu heldur SAMFÉLAGSNORMIÐ!!!!!!!!!!

 

Kv. Silja “ sem er með löglega afsökun á þvi að vera leiðinleg”


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 23:21:36 / siljaj

Árið gert upp!!

Jæja þá er komið að þvi, árið verður nú gert upp gróflega!!!: Þetta ár er búið að vera viðburðaíkt og úr nægu að taka! Og við skulum þvi byrja... þetta er mitt álit og það þarf á engan hátt að endurspegla mat þjóðarinnar;) (stolið úr idol)

Mikilvægasta stund ársins; Sara Björg fæddist, það tók á að koma henni í heiminn en það var vel þess virði!

Fyllibytta ársins; Orri Wiium, valið var erfitt en eftir langa umhugsun þá var það orri sem stóð upp úr fyrir framúrskarandi árangur í viskýdrykkjunni sinni;)

Óheppnasti maður ársins; Jón Steinn Villa-Videoson, honum á ekki að takst að hreinsa mannorð sitt né halda bílprófinu sínu!!

Djammari ársins; Dagný Thelma, hún sá um það einsömul að 101 Reykjavík myndi ekki leiðast;)

Snúlla ársins; Geirlaug syss, það fetar enginn í hennar fótspor í snúlluskap;) þessi setning hefur í ófá skipti fengið að hljóma " er pláss fyrir eina litla snúllu" ;)heheh

Mistök ársins; er án efa þegar ég var í sakleysi mínu að labba út á snúru með þvott, skrikaði fótur og tókst að ökklabrjóta mig!!! Ekki það skemmtilegast að vera með óléttubumbu og á hækjum,,,

Mesta peningavit ársins; Aron Sölvi Gíslason... eini maðurinn sem getur farið að því að fjárfesta í 1 tölvuleik á viku á Valafellskaupi,, en reyndar þarf hann að svelta út vikuna, en það er bara aukaatriði,, first things first;) heheh

Nikk ársins; Lady B.... aka. bugsy malone, aka bugsy, aka hugsy, aka hugga, aka hugrún .. jebb komið svolítið langt frá upprunalegu útgáfunni en virkar samt;)

Skoðannaglaðasta manneskja ársins; Sonja Wiium,, 2 titlar komnir til wiium ættarinnar;) en já ég held að sonja sé vel að titlinum kominn enda kemst enginn með tærnar þar sem hún er með hælana þegar kemur að því að hafa skoðun á hlutunum;)

Delludót ársins; Singstar! enda þrælskemmtilegt dót.

Mest pirrandi rödd ársins; án efa röddin hjá Simma Idol þegar hann talar inn á Dominos auglýsingarnar!! vá hvað ég get öskrað þegar ég heyri það !!

Mest pirrandi auglýsing ársins; Færeyska fíflið í Dominos auglýsingunni, talandi um að ofnota aulahúmmorinn!! ég fæ hroll þegar ég hugsa um það,.. hvað var svo málið að gera teiknimynd með fíflinu líka, come on!!. ég og Marvin tókum þann pólinn í hæðina að hætta að borða Dominos pizzur á meðan þessar auglýsingar voru í gangi, og okkur til mikillar gleði eru þær hættar;)

Bloggari ársins; Selma frænka, maður kemur ekki að tómum skjánum þar, bæði hjá henni og hjá litlu prinsessunni hennar;)

Heilsusamlegasta manneskja ársins; Hrafnhildur!! djöfull getur hún verið dugleg í megrun, það er annað en vinkona hennar;) ég hata að hreyfa mig;)

Gossyqueen ársins; Róbert! hjá honum fær maður öll smáatriðin og meira til ,, alveg eins og ég vil hafa það;) hehehe

Þáttur ársins; Nágrannar, þótt að nokkrir hafi komið til greina, t.d .oc, will og grace og fl. þa stenda gömlu góðu grannarnir alltaf fyrir sínu.. Ég bíð spennt á hverjum degi eftir því að sjá Harold gamla hrista undirhökuna á sér eins og það sé enginn morgundagur;) er hægt að vera meira sexy gamalmenni en harry kallinn?

Löngun ársins; það er lönguninn í gamla góða millerinn!! good times.. það fer að styttast;)

Vesen ársins; það er Jón Steinn frá a-ö.. allt það sem drengurinn kemur nálægt verður að veseni, enda ekki óheppnasti maður ársins fyrir ekki neitt.

Ævintýramaður ársins; Marvin!. Skemmtu þér bara vel í Sri Lanka, ég verð hér í litlu íbúðinni minni Ólafsvík að hugsa til þín fjarri öllum brjáluðu Sri Lankabúunum;)

Mestu vonbrigði Íslands; að Leoncie flutti frá Íslandi, við hefðum getað átt frægustu stjörnu heimsins!!! en nei nei sandgerðingar þurftu að hrekja hana í burtu..

Fíkn ársins; Án efa bloggfíknin!! Þetta var komið út í öfga hjá mér á tímabili, ég var farin að taka bloggrúnta í hátt í 3 tíma á dag!! ég er víst ekki ein með þessa fíkn ég veit um aðra manneskju sem er verri en ég í þessu, ég vil ekki nefna nein nöf n en Geirlaug sys kemur sterklega til greina;) hehe

Hallærislegasta moment ársins; Þegar Bachelorinn valdi sér heitmey!! drepið mig nú alveg;)

Bragð ársins; Daim ís! ekki lítið búin að éta af honum;)

Blað ársins; DV!! snilldar blaðamennska.. maður tekur þvi með fyrirvara en það hristir upp í landanum;)

Jæja nú er ég búin að gera árið upp gróflega en aldrei að vita að ég bæti inn nokkrum atriðum. .. En stóra spurningin er HVER ER MAÐUR ÁRSINS??? hver finnst ykkur og af hverju ???

Later.. Silja


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2